
Virkja - Norðvestur konur er tengslanet kvenna á Norðurlandi vestra.
Föstudagur, 09. júlí 2010 09:29
Spákonuarfur stendur fyrir göngum á Spákonufell (639 m) á hverju sumri. Með þeim er ætlunin að kynna fjallið og landnámskonuna Þórdísi sem nefnd var spákona í fornum ritum. Fararstjóri fræðir þátttakendur um fjallið, spákonuna og þá staði sem tengjast sögu hennar og afrekum.
Fararstjóri og sögumaður er Ólafur Bernódusson. Hann segir þátttakendum sögur af landnámskonunni Þórdísi spákonu, kynnir staði er tengjast henni og afrekum hennar. Ef til vill verður leitað að gullkistu þeirri er hún skildi eftir í fjallinu.
Eftir göngu er öllum boðið á kaffihlaðborð í golfskálanum að hætti Spákonuarfs.
Verð fyrir göngu (kaffihlaðborð innifalið) er kr. 2.000 frítt fyrir börn 14 ára og yngri.
Ein ganga er nú þegar búin, hún var á Jónsmessunótt en tvær eru eftir og verða þær dagana 25. júlí og 14. ágúst (sjá Dagatal).
Föstudagur, 21. maí 2010 19:09
Menningarferðin til Skagastrandar var einstaklega vel heppnuð og áhugaverð svo ekki sé meira sagt. Um 15 konur sáu sér fært um að koma og hlusta á fræðslu um Spákonuarfinn í spástofunni, Listamiðstöðina og um verkefnið Á Sturlungaslóð í Skagafirði
Það voru þær Kristín Jónsdóttir, Berglind Þorsteinsdóttir og Dagný Marín Sigmarsdóttir sem eru í starfsnefndinni Menning, listir og rannsóknir, sem sáu um að skipuleggja þessa ferð.

Föstudagur, 14. maí 2010 12:34
Nú fögnum við sumri og hittumst í spástofunni í Árnesi á Skagaströnd, fimmtudaginn 20. mai kl 18. Þar verður kynning á Spákonuarfinum og Á Sturlungaslóð í Skagafirði. Næst liggur leiðin í Listamiðstöðina þar sem Ólafía forstöðumaður tekur á móti okkur og kynnir starfsemina. Í boði verða veitingar í Listamiðstöðinni og skoðað hvað þar er til sýnis.
Bestu kveðjur
f.h. menningarhópsins
Kristín Jónsdóttir
Þriðjudagur, 04. maí 2010 22:52
Ég er búin að setja inn einhverjar myndir, á samt eftir að setja inn fleiri sem mér var sent um daginn. Þetta kemur allt með kalda vatninu :-)

Síða 1 af 2